Svör við erindum.

(Mál nr. 6492/2011)

Hinn 21. júní 2011 leitaði A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að hafa ekki fengið svar frá innanríkisráðuneytinu við fyrirspurn sendri 24. maí 2011, ítrekaðri 29. maí sl., og með bréfi, dags. 3. júní 2011, um á fjármögnun málunar á vegköntum. Umboðsmaður taldi ekki enn nægjanlega langt um liðið til þess að tilefni væri fyrir sig til að óska eftir upplýsingum um afgreiðslu málsins en tók fram að bærist A ekki ekki svar við erindi sínu innan nokkurs tíma gæti hann til sín á nýjan leik.