Útlendingar. Ríkisborgararéttur.

(Mál nr. 6469/2011)

Hinn 6. júní 2011 leitaði A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að umsókn sín um ríkisborgararétt, lögð fram í október 2009, hefði ekki enn fengið afgreiðslu. Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 23. júní 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Í skýringum ráðuneytisins til umboðsmanns kom fram að A hefði hlotið íslenskan ríkisborgararétt 14. júní 2011 og verið sent ríkisfangsbréf og bréf frá ráðuneytinu þar um. Þá hefði barn A jafnframt öðlast íslenskan ríkisborgararétt. Í ljósi þess lauk umboðsmaður athuguninni.