Skattar og gjöld. Þjónustugjöld.

(Mál nr. 6583/2011)

A kvartaði yfir ákvörðun Reykjavíkurborgar um að leggja viðbótargjald við sorphirðugjald þurfi að sækja sorpílát lengra en 15 metra frá sorpbíl.

Umboðsmaður Alþingis lauk umfjöllun sinni um erindið með bréfi. dags. 31. ágúst 2011, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.

Í ljósi 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 taldi umboðsmaður rétt að A freistaði þess að bera erindi sitt undir úrskurðarnefnd samkvæmt lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. 31. gr. laga nr. 7/1998 og 39. gr. laga nr. 55/2003, áður en hann tæki málið til umfjöllunar. Hann tók þó fram að teldi A enn á rétt sinn hallað að fenginni niðurstöðu úrskurðarnefndarinnar gæti hún leitað til sín á ný.