Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6566/2011)

Hinn 4. ágúst 2011 kvartaði A yfir því að úrskurðarnefnd um upplýsingamál hefði enn ekki kveðið upp úrskurð í máli sem hann lagði fyrir nefndina í nóvember eða desember 2010 varðandi rétt hans til að fá aðgang eða afrit af samningi vegna kaupa á bóluefni við svínaflensu.

Umboðsmaður Alþingis lauk meðferð sinni á erindi A með bréfi, dags. 31. ágúst 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.

Í skýringum úrskurðarnefndar um upplýsingamál til umboðsmanns vegna málsins kom fram að til stæði að kveða upp úrskurð í september 2011. Umboðsmaður taldi því ekki rétt að aðhafast frekar vegna máls A að svo stöddu.