Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6561/2011)

Hinn 3. ágúst 2011 kvartaði A yfir því að stjórnsýslukæra sem hann lagði fram 6. ágúst 2010 vegna beiðni um álagningu dagsekta til að koma á umgengni hans við dóttur sína hefði ekki enn verið afgreidd.

Umboðsmaður lauk meðferð sinni á málinu með bréfi, dags. 14. september 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að áætlað væri að svara erindinu um miðjan septembermánuð. Umboðsmaður taldi því ekki ástæðu til að aðhafast frekar að sinni en tók fram að bærist niðurstaða ráðuneytisins ekki innan þess tíma sem boðaður hefði verið gæti A leitað til sín á ný og jafnframt ef hann yrði ósáttur við endanlega niðurstöðu í málinu.