Svör við erindum. Umsóknir og ákvörðunartaka.

(Mál nr. 6574/2011)

Hinn 9. ágúst 2011 leitaði A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að umsókn hans um dvalarleyfi, lögð fram í október 2010, hefði ekki verið afgreidd.

Umboðsmaður lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 14. september 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.

Í skýringum Útlendingastofnunar til umboðsmanns vegna málsins kom fram að A hefði verið veitt dvalarleyfi 5. september 2011. Í ljósi þess lauk umboðsmaður málinu.