Svör við erindum.

(Mál nr. 6594/2011)

A kvartaði yfir því að forsætisráðuneytið hefði ekki svarað skriflegum erindum hennar varðandi rannsókn á vistun hennar sem barns á tilteknu heimili.

Umboðsmaður lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 28. október 2011, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum forsætisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að A hefði nú verið sent svarbréf vegna málsins. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að fjalla frekar um kvörtunina.