Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6864/2012)

Hinn 6. febrúar 2012 kvartaði A yfir því að hafa ekki borist svör frá innanríkisráðuneytinu við stjórnsýslukæru sem send var ráðuneytinu með bréfi, dags. 20. apríl 2011, og varðaði ákvörðun sveitarfélags um að greiða A ekki uppsagnarfrest vegna starfsloka hennar hjá grunnskóla.

Umboðsmaður lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 29. febrúar 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að lögmanni A hefði nú verið sendur úrskurður í málinu. Umboðsmaður lauk því umfjöllun sinni um málið en tók fram að ef A væri ósátt við úrskurð ráðuneytisins gæti hún leitað til sín á nýjan leik með sérstaka kvörtun þar að lútandi.