Menntamál. Háskólar.

(Mál nr. 6914/2012)

A, sem hafði lokið tilteknu diplómanámi á meistarastigi við deild innan Háskóla Íslands, kvartaði yfir því að skólinn hefði ekki heimilað sér að hefja vinnu við meistararitgerð við deildina.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 20. mars 2012, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Af kvörtun A varð ekki ráðið hvort hún hefði borið erindi sitt undir áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema, sbr. 20. gr. laga nr. 63/2006, um háskóla. Í ljósi 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 taldi umboðsmaður rétt að hún gerði það en fyrr gæti hann ekki tekið málið til frekari umfjöllunar. Hann lauk því athugun sinni á málinu en tók fram að ef A teldi enn á rétt sinn hallað að fenginni niðurstöðu áfrýjunarnefndarinnar ætti hún kost á að leita til sín á ný.