Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6900/2012)

Hinn 22. febrúar 2012 kvartaði A yfir því að hafa ekki borist svör frá fjármálaráðuneytinu við stjórnsýslukæru sem hann sendi ráðuneytinu með bréfi, dags. 22. september 2011 vegna synjunar áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins á beiðni hans um sérpöntun á tilteknum áfengum drykkjarvörum.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 26. mars 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum fjármálaráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að ráðuneytið hefði nú sent A úrskurð í málinu, dags. 21. mars 2012. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að fjallar frekar um kvörtunina og lauk málinu.