Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6871/2012)

Hinn 7. febrúar 2012 kvartaði A yfir töfum á afgreiðslu innanríkisráðuneytisins á erindi sendu 6. október 2011 þar sem A óskaði þess að ráðuneytið hlutaðist til um að þinglýsingarstjóri sýslumannsembættis svaraði kröfu hans um leiðréttingu á þinglýsingu.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 21. maí 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að 3. apríl 2012 hefði tilgreindur einstaklingur verið settur til að fara með erindi A og að hann hefði verið upplýstur um það. Í ljósi þeirra svara og þess farvegs sem málið var komið í taldi umboðsmaður rétt að ljúka athugun sinni á málinu en tók fram að A gæti leitað til sín að nýju ef hann teldi óeðlilegar tafir verða á meðferð málsins.