Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6990/2012)

Hinn 17. apríl 2012 kvartaði A yfir því að hafa ekki borist svör frá innanríkisráðuneytinu vegna stjórnsýslukæru sem hún sendi ráðuneytinu með bréfi, dags. 23. júní 2011, og varðaði sameiningu skólastofnana.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 25. apríl 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að ráðuneytið hefði í hyggju að ljúka meðferð málsins ekki síðar en 25. maí 2012. Í ljósi þeirra svara taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna málsins að sinni og lauk athugun sinni á því. Hann tók þó fram að A gæti leitað til sín á ný ef frekari tafir yrðu á meðferð málsins.