Svör við erindum.

(Mál nr. 6980/2012)

Hinn 3. apríl 2012 kvartaði A yfir því að forsætisráðuneytið hefði ekki svarað skriflegum erindum er vörðuðu rannsókn á vistun hennar sem barns á tilteknu heimili.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 21. maí 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum forsætisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að A hefði nú verið sent svarbréf. Umboðsmaður leit því svo á að A hefði fengið leiðréttingu mála sinna og taldi ekki tilefni til að fjalla frekar um kvörtunina.