Svör við erindum. Fyrirspurnir.

(Mál nr. 7012/2012)

Hinn 8. maí 2012 leitað A til umboðsmanns Alþingis og kvartaði yfir því að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefði ekki svarað fyrirspurn hans um starfsréttindi kennara samkvæmt lögum nr. 87/2008, um menntun og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla. Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 21. júní 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Í skýringum mennta- og menningarmálaráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram að erindinu hefði verið svarað með tölvubréfi 8. júní 2012 og A beðinn velvirðingar á töfunum. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að aðhafast frekar og lauk athugun sinni á málinu.