Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 6970/2012)

Hinn 29. mars kvartaði A yfir því að úrskurðarnefnd um sanngirnisbætur hefði ekki úrskurðað um kröfu frá 26. ágúst 2011 um sanngirnisbætur vegna dvalar hans á vistheimili.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 18. júlí 2012, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum úrskurðarnefndar um sanngirnisbætur til umboðsmanns kom fram að úrskurður hefði verið kveðinn upp í máli 1. júní 2012 og honum og lögmanni hans tilkynnt um það með bréfi, dags. 12. júní 2012. Umboðsmaður lauk því athugun sinni á málinu.