Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 7056/2012)

Hinn 11. júní 2012 kvartaði A yfir því að kærunefnd lausafjár- og þjónustukaupa hefði ekki komist að niðurstöðu í máli sem varðaði kaup á bifreið.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 18. júlí 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum kærunefndarinnar til umboðsmanns vegna málsins kom fram að nefndin hefði komist að niðurstöðu í máli A hinn 20. júní 2012. Einnig kom fram að afgreiðsla málsins hefði tafist þar sem nefndin hefði ákveðið að nýta sér heimild til að kveðja sér aðstoðar mann með sérkunnáttu á bifreiðum og bifreiðarviðgerðum. Í ljósi þess að mál A hafði verið afgreitt taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar og lauk athugun sinni á málinu.