Svör við erindum.

(Mál nr. 7052/2012)

Hinn 6. júní 2012 kvörtuðu samtökin A yfir því að forsætisráðuneytið hefði ekki svarað erindi frá 2. maí 2012 sem laut að nánar tilgreindum ummælum forsætisráðherra í sjónvarpsviðtali.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 27. ágúst 2012, með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í skýringum forsætisráðuneytisins til umboðsmanns kom fram að erindinu hefði verið svarað 20. ágúst 2012. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að aðhafast frekar í málin og lauk athugun sinni á því.