Tolleftirlit.

(Mál nr. 7154/2012)

A kvartaði yfir starfsháttum starfsmanna tollstjóra vegna leitar í bifreið sem hann flutti til landsins, nánar tiltekið því að hafa ekki fengið að vera viðstaddur leitina.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 28. september 2012, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Í ljósi 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997 taldi umboðsmaður rétt að A leitaði fyrst til fjármála- og efnahagsráðuneytisins með erindi sitt, sbr. 38. gr. tollalaga nr. 88/2005. Umboðsmaður lauk athugun sinni á málinu en tók fram að ef A teldi sig enn beittan rangindum að fenginni niðurstöðu ráðuneytisins gæti hann leitað til sín að nýju.