Fjármála- og tryggingastarfsemi. Einkaréttarlegir aðilar.

(Mál nr. 7170/2012)

A leitaði til umboðsmanns Alþingis með kvörtun sem beindist að fjármálafyrirtæki vegna láns sem hann tók í erlendri mynt á árinu 2007.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 26. október 2012, með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Umboðsmaður benti á að kvörtun A beindist að starfsemi einkaaðila og fæli ekki í sér beitingu opinbers valds sem þeim aðila hefði verið fengið með lögum. Í ljósi þess taldi umboðsmaður ekki uppfyllt skilyrði laga nr. 85/1997, sbr. 2. og 3. gr. laganna, til að taka kvörtunina til frekari meðferðar og lauk umfjöllun sinni um erindið.