Kirkjumál og trúfélög.

(Mál nr. 6691/2011)

A kvartaði yfir því að sóknarnefnd innan þjóðkirkjunnar hefði ekki farið að úrskurði úrskurðarnefnd þjóðkirkjunnar í máli hennar og þeirri afstöðu kirkjuráðs að nefndinni hefði ekki verið skylt að fylgja tilmælum í úrskurðinum. A kvartaði jafnframt yfir því að biskup Íslands hefði setið fund kirkjuráðs þrátt fyrir að hafa komið að málinu á fyrri stigum þess. Þá hefði forseti kirkjuþings einnig setið fundinn, en A taldi það brot á þeirri meginreglu að framkvæmdarvald og löggjafarvald væru ótengd nema málið varðaði kirkjuþing.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi, dags. 30. nóvember 2012.

A hafði leitað til innanríkisráðuneytisins vegna málsins. Ráðuneytið hafði hins vegar talið málið falla utan valdsviðs síns þar sem það varðaði innra skipulag og starfshætti þjóðkirkjunnar og framsent málið kirkjuráði til meðferðar. Umboðsmaður ritaði ráðuneytinu því bréf og óskaði eftir afstöðu þess til þess hvernig túlka bæri ákvæði í lögum um tilsjónarvald ráðuneytisins með þjóðkirkjunni. Í kjölfarið tilkynnti ráðuneytið umboðsmanni að láðst hefði að upplýsa A um að hún gæti leitað til ráðuneytisins á ný fengi hún ekki leyst úr málinu hjá kirkjuráði. Ráðuneytið myndi því afla upplýsinga hjá kirkjuráði um lyktir málsins þar og meta hvort það gæfi tilefni til frekari skoðunar. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar og lauk athugun sinni á málinu. Hann tók þó fram að A gæti leitað til sín á nýjan leik að fenginni niðurstöðu ráðuneytisins yrði hún ósátt við hana. Þá ritaði umboðsmaður innanríkisráðherra bréf og óskaði þess að sér yrði kynnt niðurstaða í máli A þar sem það kynni að hafa almenna þýðingu í málum sem berast umboðsmanni og varða málefni þjóðkirkjunnar og aðkomu ráðuneytisins að þeim málum. Þar sem svör ráðuneytisins vegna málsins bárust ekki fyrr en um tíu mánuðum eftir að upphaflegum svarfresti, en þá hafði erindið verið ítrekað fimm sinnum, lauk minnti umboðsmaður ráðuneytið jafnframt á að svara erindum sínum innan hæfilegs tíma.

1997, nr. 78. Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. - 4. gr.

1997, nr. 85. Lög um umboðsmann Alþingis. - 3. mgr. 6. gr., a-liður 2. mgr. 10. gr.