Kirkjumál og trúfélög.

(Mál nr. 6825/2011)

A, B og C leituðu til umboðsmanns Alþingis og óskuðu eftir áliti á því hvort í þágildandi starfsreglum þjóðkirkjunnar um sóknarnefndir væri heimilt að krefjast rökstuðnings fyrir ósk safnaðarfólks um prestkosningu í lok ráðningartímabils sóknarprests þrátt fyrir að slíkt skilyrði kæmi ekki fram í lögum.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi 30. nóvember 2012.

Málsaðilarnir höfðu leitað til dómsmála- og mannréttindaráðuneytisins vegna málsins en innanríkisráðuneytið, sem tók við málaflokknum við stofnun þess ráðuneytis, taldi álitaefni um lögmæti ákvörðunar prófasts um að synja um að fram færi prestskosning lægi fyrir utan valdsvið sitt. Ráðuneytið taldi hins vegar vafa leika á því hvort starfsreglurnar væru í samræmi við lög og tilkynnti þeim að þess yrði farið á leit við kirkjuráð að það hlutaðist til um að athuga hvort tilefni væri til að breyta ákvæðinu Umboðsmaður ritaði innanríkisráðuneytinu bréf og óskaði eftir afstöðu þess til þess hvernig túlka bæri ákvæði í lögum um tilsjónarvald ráðuneytisins með þjóðkirkjunni. Í skýringum ráðuneytisins til umboðsmanns kom fram að málið væri enn til meðferðar í ráðuneytinu og nú væri til athugunar hvort tilteknar breytingar sem gerðar hefðu verið á reglunum væru í samræmi við lög. A, B og C yrðu upplýst um niðurstöðuna. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar og lauk athugun sinni á málinu. Hann tók þó fram að A, B og C gætu leitað til sín á nýjan leik að fenginni niðurstöðu ráðuneytisins yrði þau ósátt við hana. Þá ritaði umboðsmaður innanríkisráðherra bréf og óskaði þess að sér yrði kynnt niðurstaða í máli A þar sem það kynni að hafa almenna þýðingu í málum sem berast umboðsmanni og varða málefni þjóðkirkjunnar og aðkomu ráðuneytisins að þeim málum. Þar sem svör ráðuneytisins vegna málsins bárust ekki fyrr en um tíu mánuðum eftir að upphaflegum svarfresti, en þá hafði erindið verið ítrekað fimm sinnum, lauk minnti umboðsmaður ráðuneytið jafnframt á að svara erindum sínum innan hæfilegs tíma.

1997, nr. 78. Lög um stöðu, stjórn og starfshætti þjóðkirkjunnar. - 4. gr.

1997, nr. 85. Lög um umboðsmann Alþingis. - 3. mgr. 6. gr., a-liður 2. mgr. 10. gr.

1998, nr. 732. Starfsreglur þjóðkirkjunnar um sóknarnefndir. - 19. gr.