Svör við erindum. Umsóknir og ákvörðunartaka.

(Mál nr. 7251/2012)

Hinn 7. nóvember 2012 kvartaði A yfir töfum á afgreiðslu umsóknar hans um hæli á Íslandi.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi 14. desember 2012.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom fram ráðuneytið hefði staðfest ákvörðun Útlendingastofnunar um að synja umsókn A með úrskurði sem var kynntur honum 22. ágúst 2012. Í ljósi þess að A eignaðist barn hér á landi skömmu áður en úrskurðurinn var kynntur honum hefði lögmaður hans hins vegar óskað eftir því að málið yrði endurskoðað og réttaráhrifum úrskurðarins frestað. Ákvörðunar í málinu væri að vænta í byrjun janúar 2013. Í ljósi þess taldi umboðsmaður ekki tilefni til að aðhafast frekar að svo stöddu og lauk athugun sinni á málinu. Hann tók hins vegar fram að ef frekari tafir yrðu á málinu umfram þau tímamörk sem innanríkisráðuneytið tilgreindi í skýringum sínum gæti A leitað til sín á ný.

1997, nr. 85. Lög um umboðsmann Alþingis. - a-liður 2. mgr. 10. gr.