Svör við erindum. Kvartanir eða kærur til æðri stjórnvalda eða eftirlitsstofnana.

(Mál nr. 7298/2012)

Hinn 7. desember 2012 kvartaði A yfir því að innanríkisráðuneytið hefði ekki afgreitt kæru sem hann lagði fram 14. maí það ár á ákvörðun Útlendingastofnunar um að hafna því að taka umsókn hans um hæli til meðferðar.

Umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á málinu með bréfi 28. janúar 2013.

Í skýringum innanríkisráðuneytisins til umboðsmanns vegna málsins kom m.a. fram að lögmanni A hefði verið veittur kostur á að koma að frekari gögnum og athugasemdum í máli hans 13. júní 2012 en engin svör hefðu borist. Ráðgert væri að taka ákvörðun í málinu í lok marsmánaðar 2013. Í ljósi þess taldi umboðsmaður ekki ástæðu til að aðhafast frekar vegna kvörtunarinnar en tók fram að ef frekari tafir yrðu á afgreiðslu málsins umfram þau tímamörk sem ráðuneytið hafði tilgreint gæti A leitað aftur til sín.

1997. nr. 85. Lög um umboðsmann Alþingis. - a-liður 2. mgr. 10. gr.