Heilbrigðismál. Sóttvarnir. Covid-19.

(Mál nr. 11063/2021)

Óskað var eftir að umboðsmaður tæki stjórnsýslu sóttvarnalæknis, varðandi ákvörðun um hvaða tegund bóluefnis fólk kæmi til með að fá vegna COVID-19, til skoðunar á grundvelli frumkvæðisheimildar sinnar.

 Þegar umboðsmanni berast erindi sem fela í sér ábendingu eða eru að öðru leyti almenns eðlis þá er verklagið þannig að erindið er yfirfarið með tilliti til þess hvort tilefni sé til að taka atriði sem koma fram í því til athugunar á grundvelli frumkvæðisheimildarinnar. Við mat á því er meðal annars litið til starfssviðs og áherslna umboðsmanns, hagsmuna sem tengjast málefninu sem um ræðir og málastöðu og nýtingar mannafla hjá embættinu. Verði málefnið tekið til athugunar er almennt ekki upplýst um það sérstaklega heldur er tilkynnt um athugunina á vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 4. maí 2021, sem hljóðar svo:

   

Ég vísa til erindis yðar sem barst umboðsmanni Alþingis 28. apríl sl. og lýtur að bólusetningum sem nú standa yfir vegna heimsfaraldurs COVID-19. Í erindi yðar kemur fram að þér óskið þess að umboðsmaður taki stjórnsýslu sóttvarnalæknis, varðandi ákvörðunartöku um hvaða tegund bóluefnis einstaklingar komi til með að fá, til skoðunar að eigin frumkvæði á grundvelli heimildar umboðsmanns þar um, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997, umboðsmann Alþingis.

Í tilefni af kvörtun yðar tek ég fram að hlutverk umboðsmanns Alþingis er að hafa í umboði Alþingis eftirlit með stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga á þann hátt sem nánar greinir í lögum og tryggja rétt borgaranna gagnvart stjórnvöldum landsins. Skal hann gæta þess að jafn­ræði sé í heiðri haft í stjórnsýslunni og að hún fari að öðru leyti fram í samræmi við lög, vandaða stjórnsýsluhætti og siðareglur settar á grundvelli laga um Stjórnarráð Íslands og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, sbr. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Samkvæmt 4. gr. laga nr. 85/1997 getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit umboðsmanns Alþingis samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna kvartað af því tilefni til umboðsmanns og skal hann þá lýsa þeirri úrlausn eða annarri háttsemi stjórnvalds sem er tilefni kvörtunar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laganna. Lögin gera jafnframt ráð fyrir að nýttar séu þær kæruleiðir sem kunna að vera fyrir hendi innan stjórnsýslunnar, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, áður en kvartað er til umboðsmanns. Kvörtun í máli einstaklings eða lögaðila verður þannig að lúta að tilteknum athöfnum, athafnaleysi eða ákvörðunum stjórn­valda sem beinast sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varða beinlínis hagsmuni hans eða réttindi. Ekki er hins vegar gert ráð fyrir að umboðsmaður veiti almennar álitsgerðir samkvæmt beiðni eða svari almennum lögspurningum.

Af framangreindum ákvæðum laga nr. 85/1997 leiðir að starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds verður að öllu jöfnu ekki tekin til almennrar athugunar hjá umboðsmanni Alþingis á grundvelli kvörtunar, þótt öllum sé frjálst að koma á framfæri við umboðsmann ábendingum um atriði af því tagi, heldur eru slík mál eftir atvikum tekin til umfjöllunar á grundvelli heimildar umboðsmanns samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/1997 til að taka starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds til almennrar athugunar að eigin frumkvæði. Þessari ábendingu, eins og öðrum ábendingum sem umboðsmanni Alþingis berast, verður haldið til haga.

Þegar umboðsmanni berast erindi sem fela í sér ábendingu eða eru að öðru leyti almenns eðlis þá er verklagið þannig að erindið er yfirfarið með tilliti til þess hvort tilefni sé til að taka atriði sem koma fram í því til athugunar á grundvelli frumkvæðisheimildarinnar. Við mat á því er meðal annars litið til starfssviðs og áherslna umboðsmanns, hagsmuna sem tengjast málefninu sem um ræðir og málastöðu og nýtingar mannafla hjá embættinu. Verði málefnið tekið til athugunar er almennt ekki upplýst um það sérstaklega heldur er tilkynnt um athugunina á vefsíðu umboðsmanns, www.umbodsmadur.is.

Með hliðsjón af framangreindu, og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, lýk ég hér með umfjöllun minni um mál yðar.