Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11180/2021)

Kvartað var yfir að Seðlabanki Íslands hefði ekki svarað erindi.

Við eftirgrennslan kvaðst Seðlabankinn hafa brugðist við erindinu og því ekki ástæða fyrir umboðsmann til að aðhafast frekar. 

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 10. ágúst 2021, sem hljóðar svo:

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar, dags. 16. júní sl., yfir að ekki hafi borist svör við erindum til Seðlabanka Íslands [...].

Í tilefni af kvörtun yðar var Seðlabanka Íslands ritað bréf, dags. 21. júní sl., þar sem þess var óskað að bankinn upplýsti um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins. Mér hefur nú borist hjálagt svar, dags. 12. júlí sl., þar sem fram kemur m.a. að brugðist hafi verið við umræddum erindum með því að árétta fyrri afstöðu bankans [...].

Þar sem kvörtun yðar lýtur að því að erindum hafi ekki verið svarað og það hefur nú verið gert tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.