Almannavarnir. Heilbrigðismál. COVID-19.

(Mál nr. 11231/2021)

Kvartað var yfir takmörkun á samkomum vegna farsóttar þar sem mælt var fyrir um grímunotkun og að reglugerð heilbrigðisráðherra hefði ekki lagastoð í sóttvarnalögum.

Starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds verður að öllu jöfnu ekki tekin til almennrar athugunar hjá umboðsmanni á grundvelli kvörtunar. Ekki er heldur gert ráð fyrir að umboðsmaður veiti almennar álitsgerðir samkvæmt beiðni eða svari almennum lögspurningu. Til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann þarf að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Ekki varð séð að svo væri í þessu tilfelli og því ekki skilyrði fyrir umboðsmann til að fjalla um kvörtunina.

     

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 10. ágúst 2021, sem hljóðar svo:

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar sem barst umboðsmanni Alþingis 24. júlí sl. sem beint er að heilbrigðisráðherra og lýtur að 2. og 3. mgr. 4. gr. reglugerðar nr. 878/2021, um takmörkun á samkomum vegna farsóttar, þar sem mælt er fyrir um grímunotkun. Af kvörtuninni verður ráðið að þér teljið ákvæði reglugerðarinnar að þessu leyti ekki eiga sér stoð í ákvæðum sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum. Þá hafi heilbrigðisráðherra, að því er varðar skyldu til að bera andlitsgrímu í verklegu ökunámi og flugnámi, gengið lengra en sóttvarnalæknir lagði til í minnisblaði sínu til ráðherra frá 22. júlí sl.

Í tilefni af kvörtun yðar tek ég fram samkvæmt 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit umboðsmanns Alþingis samkvæmt 1. og 2. mgr. 3. gr. laganna kvartað af því tilefni til umboðsmanns og skal hann þá lýsa þeirri úrlausn eða annarri háttsemi stjórnvalds sem er tilefni kvörtunar, sbr. 1. mgr. 6. gr. laganna. Lögin gera þó ráð fyrir að nýttar séu þær kæruleiðir sem kunna að vera fyrir hendi innan stjórnsýslunnar, sbr. 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, áður en kvartað er til umboðsmanns.

Af framangreindu leiðir að starfsemi og málsmeðferð stjórnvalds verður að öllu jöfnu ekki tekin til almennrar athugunar hjá umboðsmanni Alþingis á grundvelli kvörtunar, þótt öllum sé frjálst að koma á framfæri við umboðsmann ábendingum um atriði af því tagi, heldur verður kvörtun að lúta að tilteknum athöfnum, athafnaleysi eða ákvörðunum stjórn­valda sem beinast sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varða beinlínis hagsmuni hans eða réttindi. Ekki er heldur gert ráð fyrir að umboðsmaður veiti almennar álitsgerðir samkvæmt beiðni eða svari almennum lögspurningum.

Ég fæ ekki séð af erindi yðar, en því fylgdu engin gögn, að kvartað sé yfir tiltekinni athöfn, athafnaleysi eða ákvörðun stjórnvalds í framangreindum skilningi. Er því ljóst að lagaskilyrði brestur til þess að ég geti tekið kvörtun yðar til frekari athugunar. Hins vegar er bent á að umboðsmaður hefur haft ýmsa þætti í aðgerðum stjórnvalda vegna COVID-19 til athugunar, m.a. að eigin frumkvæði, og mun gera það áfram.

Með hliðsjón af framangreindu, og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, lýk ég hér með umfjöllun minni um mál yðar.