Almannatryggingar. Sjúkratryggingar. Greiðsluþátttaka.

(Mál nr. 11010/2021)

Kvartað var yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála sem staðfesti ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands að synja umsókn um styrk til kaupa á loftföstu lyftukerfi.

Eftir að umboðsmaður óskaði eftir öllum gögnum málsins og tilteknum upplýsingum og skýringum  ákvað nefndin að endurupptaka málið. Því var ekki tilefni til að aðhafast frekar að svo stöddu.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 2. september 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar til umboðsmanns Alþingis, dags. 25. mars sl., yfir úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála frá 9. febrúar sl. í máli nr. 574/2020 þar sem ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands um að synja umsókn A um styrk til kaupa á loftföstu lyftukerfi var staðfest.

Í bréfi í tilefni af kvörtun yðar voru úrskurðarnefnd velferðarmála rituð tvö bréf, dags. 30. mars og 23. júní sl., þar sem óskað var eftir annars vegar öllum gögnum málsins og hins vegar tilteknum upplýsingum og gögnum. Mér barst svarbréf frá nefndinni, dags. 1. september sl., þar sem fram kom að nefndin hefði komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að endurupptaka mál A.

Í ljósi þess að úrskurðarnefnd velferðarmála hefur endurupptekið mál A tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna þess að svo stöddu og læt athugun minni á málinu lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek þó fram að ef þér teljið A enn beittan rangsleitni að fenginni nýrri niðurstöðu úrskurðarnefndar velferðarmála getið þér leitað til mín að nýju vegna þess.