Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11120/2021)

Kvartað var yfir töfum hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins á afgreiðslu kæru vegna ákvörðunar Kópavogsbæjar um álagningu gatnagerðargjalds.

Í kjölfar ítrekaðra fyrirspurna barst svar frá ráðuneytinu þess efnis að úrskurður hefði verið kveðinn upp. Þar með var ekki ástæða til að umboðsmaður aðhefðist frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 1. september 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar f.h. A hf. yfir töfum á afgreiðslu á kæru frá 20. september 2019 vegna ákvörðunar Kópavogsbæjar um álagningu gatnagerðargjalds vegna fasteignar félagsins (mál nr. SRN19090079/4.12.9 í málaskrá ráðuneytisins).

Í tilefni af kvörtun yðar voru samgöngu- og sveitarstjórnar­ráðu­neytinu rituð bréf, dags. 26. maí, 18. júní og 25. ágúst sl., þar sem þess var óskað að ráðuneytið upplýsti um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins. Mér hefur nú borist hjálagt svar þar sem fram kemur að úrskurður hafi verið kveðinn upp í málinu 30. júní sl.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að því að töfum á afgreiðslu málsins og niðurstaða þess liggur nú fyrir tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.