Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Innflutningur vöru.

(Mál nr. 11291/2021)

Kvartað var yfir að hafa hvorki fengið upplýsingar  né leiðbeiningar frá tollyfirvöldum um fyrirkomulag innflutnings á rafmagnsreiðhjólum eftir breytingar á reglum þar að lútandi.

Í símtali við starfsmann umboðsmanns kom fram hjá viðkomandi að erindi hans væri til meðferðar hjá Samgöngustofu og í tilteknum farvegi. Umboðsmaður taldi því ekki tilefni til að aðhafast frekar. Leita mætti til sín að nýju ef viðkomandi teldi óhóflegan drátt verða á svörum Samgöngustofu og þá að undangengnum skriflegum ítrekunum þar að lútandi.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 23. september 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtun yðar dags. 6. september sl., sem þér beinið að tollyfirvöldum og lýtur að því að þér hafið ekki fengið upplýsingar og leiðbeiningar um fyrirkomulag innflutnings á rafmagnsreiðhjólum eftir breytingar á reglum þar að lútandi. Í símtali yðar við starfsmann umboðsmanns kom fram að erindi yðar væri nú til meðferðar hjá Samgöngustofu og að það væri í tilteknum farvegi.

Af þessu tilefni tek ég fram að það er meginregla í stjórnsýslurétti að stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa. Það hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem lita verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkuð svigrúm í þessu efni. Af hálfu umboðsmanns hefur almennt verið litið svo á að rétt sé að sá sem ber fram kvörtun vegna þess að dráttur hafi orðið á því að stjórnvald svaraði erindi frá honum leiti fyrsta kastið sjálfur til stjórnvaldsins með ítrekun á erindinu og gefi því þannig færi á að bregðast við áður en leitað er til umboðsmanns með kvörtun.

Í ljósi þess sem fram kom í símtali yðar við starfsmann minn lýk ég hér með umfjöllun minni um mál yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Ég tek hins vegar fram að í samræmi við framangreint getið þér leitað til mín á nýjan leik ef þér teljið óhóflegan drátt verða á svörum Samgöngustofu og þá að undangengnum skriflegum ítrekunum af yðar hálfu á erindinu.