Samgöngumál. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 11292/2021)

Kvartað var yfir sætaskipan í flugi hjá flugfélaginu Play.

Þar sem starfssemi Play fellur ekki undir starfssvið umboðsmanns voru ekki lagaskilyrði til að taka kvörtunina til frekari meðferðar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 22. september 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til erindis yðar, dags. 6. september 2021, þar sem þér kvartið yfir sætaskipan í flugi hjá flugfélaginu Play.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþinigs, tekur starfssvið umboðsmanns Alþingis til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga auk starfsemi einkaaðila að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Önnur starfsemi einkaaðila fellur hins vegar ekki undir starfssvið umboðsmanns Alþingis eins og það er afmarkað í lögum nr. 85/1997.

Flugfélagið Fly Play hf. er einkaaðili sem komið er á fót með stofnsamningi samkvæmt ákvæðum laga nr. 2/1995, um hlutafélög. Starfsemi félagsins felur ekki í sér beitingu opinbers valds til að taka ákvörðun um rétt eða skyldu manna í framangreindri merkingu. Samkvæmt þessu fellur starfsemi Play ekki undir starfsvið umboðsmanns samkvæmt lögum nr. 85/1997 og bresta því lagaskilyrði til þess að ég geti tekið erindi yðar til frekari meðferðar.

Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er umfjöllun minni um erindi yðar lokið.