Skattar og gjöld.

(Mál nr. 11303/2021)

Kvartað var yfir hækkun á gjaldi fyrir íbúakort sem Bílastæðasjóður Reykjavíkur gefur út og að ekki væri heimild fyrir slíkri gjaldtöku í lögum.

Fram kom að viðkomandi var ekki handhafi slíks korts og hafði því ekki heldur greitt slíkt gjald. Ekki varð því séð að kvörtunin snerti beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra og því ekki tilefni til að taka erindið til nánari athugunar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 23. september 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til erindis yðar dags. 15. september sl., þar sem þér kvartið annars vegar yfir hækkun á gjaldi fyrir íbúakort sem Bílastæðasjóður Reykjavíkur gefur út og hins vegar yfir því að ekki sé heimild fyrir slíkri gjaldtöku í lögum. Í símtali yðar við starfsmann umboðsmanns kom fram að þér séuð ekki handhafi slíks korts og hafið þar af leiðandi ekki greitt slíkt gjald. 

Hver sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit umboðsmanns Alþingis getur kvartað af því tilefni til umboðsmanns, sbr. 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Í þessu ákvæði felst að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann Alþingis þarf að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða varðar beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Kvörtun af hálfu aðila sem ekki sýnir fram á að brot geti snert beinlínis hagsmuni hans eða réttindi getur þó vakið athygli umboðsmanns á vandamáli. Er honum þá heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997. Ef af slíkri athugun verður í kjölfar ábendingar eða kvörtunar er þeim sem vekur máls á vanda almennt ekki tilkynnt sérstaklega um það heldur er upplýst um það á vefsíðu embættisins, www. umbodsmadur.is.

Ég fæ ekki ráðið að þau atriði sem tilgreind eru í kvörtun yðar snerti beinlínis hagsmuni yðar eða réttindi umfram aðra. Ég tel því ekki tilefni til að taka erindi yðar til nánari athugunar.

Með hliðsjón af framangreindu lýk ég athugun minni á kvörtun yðar með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.