Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

(Mál nr. 11327/2021)

Kvartað var yfir töfum á afhendingu gagna frá Umhverfisstofnun.

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns upplýsti Umhverfisstofnun að erindinu hefði verið svarað og aðeins eitt þerra gagna sem vantaði hefði fundist. Þar sem erindinu hafði verið svarað var ekki ástæða til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 15. október 2021, sem hljóðar svo:

   

  

Vísað er til kvörtunar yðar, dags. 30. september sl., vegna tafa á afhendingu gagna frá Umhverfisstofnun samkvæmt beiðni yðar, dags. 24. júní 2019.

Í tilefni af kvörtun yðar var Umhverfisstofnun ritað bréf, dags. 4. október sl., þar sem þess var óskað að stofnunin upplýsti mig hvort umbeðin gögn væru fyrirliggjandi og hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Mér hefur nú borist hjálagt svar frá Umhverfisstofnun, dags. 6. október sl., þar sem fram kemur m.a. að yður hafi nú verið svarað og að einungis eitt af þeim gögnum sem vantaði hafi fundist.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að erindi yðar hafi ekki verið svarað og þar sem það hefur nú verið gert tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.