Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls. Menntamál. COVID-19.

(Mál nr. 11329/2021)

Kvartað var yfir að mennta- og menningarmálaráðuneytið hefði ekki svarað erindi um hvort leiðbeiningar ráðuneytisins um sóttvarnir í skólastarfi hefðu heimilað skólastjórnendum tiltekins skóla að loka tímabundið fyrir staðnám. Erindið hefði verið sent 16. september 2021 og ítrekað 24. september.

Umboðsmaður taldi ekki slíkan drátt hafa orðið á svörum ráðuneytisins að tilefni væri til að taka erindið til frekari athugunar. Ef ráðuneytið hefði ekki svarað 1. nóvember mætti leita til sín aftur.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 12. október 2021, sem hljóðar svo:

   

  

Vísað er til kvörtunar yðar f.h. foreldrafélags [skólans X] dags. 1. október sl., yfir því að mennta- og menningarmálaráðuneytið hafi ekki svarað erindi yðar um hvort leiðbeiningar ráðuneytisins um sóttvarnir í skólastarfi heimili skólastjórnendum X að loka tímabundið fyrir staðnám. Fram kemur í kvörtun yðar að erindið hafi verið sent 16. september og ítrekað 24. september sl.

Stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa, sbr. eftir atvikum meginreglu 1. mgr. 9. gr. stjórnsýsluslaga nr. 37/1993. Það hvort um óðeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkuð svigrúm í þessu efni. Ég tel að ekki hafi enn orðið slíkur dráttur á svörum ráðuneytisins við erindi yðar frá 16. september sl. að tilefni sé til að ég taki erindi yðar til frekari athugunar. Í því felst ekki afstaða til þess hvort ástæðulausar tafir séu orðnar á málinu heldur eingöngu það mat mitt að ekki sé að svo stöddu tilefni fyrir umboðsmann til að grípa inn í.

Ég tek fram að þér getið leitað til mín á nýjan leik hafi svar ekki borist yður 1. nóvember nk.

Lýk ég því hér með umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.