Almannatryggingar.

(Mál nr. 11347/2021)

Kvartað var yfir ákvörðun Tryggingastofnunar að endurreikna tekjutengdar greiðslur og gera viðkomandi að endurgreiða.

Af kvörtuninni og gögnum sem henni fylgdu varð ekki ráðið að ákvörðun Tryggingastofnunar hefði verið skotið til úrskurðarnefndar vel­ferðar­mála. Ekki voru því laga­skilyrði til að umboðsmaður fjallað um hana að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 21. október 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 15. október sl., sem lýtur að ákvörðun Trygginga­stofnunar 24. september sl. um að endurreikna tekjutengdar greiðslur yðar fyrir árið 2020 og í kjölfarið gera yður að endurgreiða stofnuninni 421.694 kr.

Í 13. gr. laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, kemur m.a. fram að rísi ágreiningur um grundvöll, skilyrði eða fjárhæð bóta eða greiðslna samkvæmt lögunum kveði úrskurðarnefnd velferðarmála upp úrskurð í málinu. Sama gildi um ágreining um endurkröfurétt, of­greiðslur og innheimtu þeirra, sbr. 55. gr. laganna. Þá segir að kæra til nefndarinnar skuli vera skrifleg og borin fram innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðunina. Hjá Tryggingastofnun og þjónustustöðvum hennar skuli liggja frammi eyðublöð í þessu skyni og skulu starfsmenn stofnunarinnar veita nauðsynlega aðstoð við útfyllingu þeirra.

Ástæða þess að þetta er rakið er að samkvæmt 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er ekki unnt að kvarta til umboðs­manns ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds og það hefur ekki fellt úrskurð sinn í málinu. Byggist þetta ákvæði á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli sjálf fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir eða annað í störfum sínum sem hugsanlega er ekki í samræmi við lög áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun. Af ákvæðinu leiðir m.a. að almennt verður mál ekki tekið fyrir af hálfu umboðsmanns á grundvelli kvörtunar fyrr en það hefur verið endanlega til lykta leitt innan stjórnsýslunnar.

Af kvörtun yðar og gögnum sem henni fylgdu verður ekki ráðið að þér hafið skotið ákvörðun Tryggingastofnunar til úrskurðarnefndar vel­ferðar­mála. Fyrir liggur að í ákvörðun stofnunarinnar var yður leiðbeint um framangreinda kæruheimild. Í samræmi við framangreint brestur laga­skilyrði til að fjallað verði um kvörtunina að svo stöddu. Ef þér kjósið að leita með mál yðar til úrskurðarnefndarinnar og teljið yður beittan rangsleitni að fenginni niðurstöðu hennar getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi. Slík kvörtun þarf að berast innan árs frá því að niðurstaða nefndarinnar liggur fyrir, sbr. 2. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997.

Með vísan til framangreinds læt ég máli yðar lokið af minni hálfu, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.