Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11399/2021)

Kvartað var yfir að Matvælastofnun hefði ekki svarað erindi sem sent var um miðjan október og ítrekað í byrjun nóvember.

Umboðsmaður taldi ekki slíkan drátt hafa orðið á svörum við erindinu að ástæða væri að taka kvörtunina til frekari athugunar að svo stöddu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 24. nóvember 2021, sem hljóðar svo:

 

  

Vísað er til kvörtunar yðar 17. nóvember sl. sem þér beinið að Matvælastofnun og lýtur að því að stofnunin hafi ekki svarað erindi yðar frá miðjum október sl., en samkvæmt kvörtuninni var erindið ítrekað 2. nóvember sl.

Í tilefni af kvörtun yðar tek ég fram að stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa. Það hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og þeirra málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkuð svigrúm í þessu efni. Að þessu virtu verður ekki talið að enn hafi orðið slíkur dráttur á svörum frá Matvælastofnun við erindi yðar að tilefni sé til að kvörtun yðar verði tekin til frekari athugunar að svo stöddu. Þér getið leitað til mín á nýjan leik verði óhæfilegur dráttur á að svar berist yður, eftir atvikum að undangengnum ítrekunum á erindi yðar.

Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.