Aðgangur að gögnum og upplýsingum.

(Mál nr. 11405/2021)

Kvartað var yfir að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hefði ekki veitt aðgang að gögnum vegna ráðningarmáls.

Samkvæmt gögnum tilkynnti ráðuneytið viðkomandi í lok október að unnið væri í málinu. Taldi umboðsmaður ekki slíkan drátt hafa orðið á svörum að ástæða væri til frekari athugunar af sinni hálfu.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 7. desember 2021, sem hljóðar svo:

 

  

Vísað er til kvörtunar yðar 19. nóvember sl. yfir því að samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið hafi ekki veitt yður aðgang að gögnum vegna ráðningarmáls sem þér teljið yður eiga rétt á. Samkvæmt gögnum sem fylgdu kvörtuninni tilkynnti ráðuneytið yður síðast 29. október sl. að unnið væri í málinu. 

Stjórnvöldum ber almennt að svara erindum sem þeim berast án ástæðulausra tafa, sbr. eftir atvikum meginreglu 1. mgr. 9. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Það hvort um óeðlilegan drátt hafi verið að ræða á að stjórnvald svari erindi er því byggt á mati hverju sinni þar sem líta verður m.a. til efnis viðkomandi erindis og málsmeðferðarreglna sem stjórnvöldum ber að fylgja við afgreiðslu þess. Með tilliti til fjölda erinda sem stjórnvöldum berast verður jafnframt að ætla þeim nokkuð svigrúm í þessu efni. Þótt áætlanir ráðuneytisins um vinnslu málsins hafi ekki staðist hingað til verður ekki talið að enn hafi orðið slíkur dráttur á svörum þess við erindum yðar að nægt tilefni sé til að það verði tekið til frekari athugunar hjá umboðsmanni að svo stöddu.

Lýk ég því hér með umfjöllun minni um kvörtun yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.