Börn.

(Mál nr. 11408/2021)

Kvartað var yfir úrskurði sýslumanns um umgengni barns við föður sinn.

Þar sem úrskurðurinn hafði ekki verið kærður til dómsmálaráðherra, nú innanríkisráðherra, og kæruleið þannig tæmd voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina. Í ljósi þess að kærufrestur var liðinn leiðbeindi umboðsmaður um mögulegar leiðir vegna þess.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 6. desember 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 23. nóvember sl. yfir úrskurði sýslumanns um umgengni barns yðar við föður sinn.

Í tilefni af kvörtuninni hringdi starfsmaður minn í yður 1. desember sl. og óskaði eftir frekari skýringum. Í símtalinu kom fram að úrskurður sýslumanns hefði ekki verið kærður til dómsmálaráðherra, nú innanríkisráðherra, sbr. 1. mgr. 78. gr. barnalaga nr. 76/2003, en kærufrestur væri liðinn. Þá var yður leiðbeint um heimild sýslumanns samkvæmt 5. mgr. 47. gr. sömu laga til að breyta eða fella úr gildi úrskurð eða samning um umgengni ef slík úrlausn þyki barni fyrir bestu. Loks var athygli vakin á kæruheimild til ráðherra vegna málsins.

Ástæða þess að yður er bent á framangreind lagaákvæði er að í 3. mgr. 6. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er kveðið á um að ekki sé unnt að kvarta til umboðsmanns, ef skjóta má máli til æðra stjórnvalds og það hefur ekki fellt úrskurð sinn í málinu. Ákvæði þetta er byggt á því sjónarmiði að stjórnvöld skuli fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra með kvörtun.

Í tilefni af því sem kom fram í fyrrnefndu símtali um að tveggja mánaða kærufrestur 1. mgr. 78. gr. barnalaga væri nú liðinn tel ég rétt að benda yður á að í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 er fjallað um það þegar kæra berst að liðnum kærufresti. Þannig segir í 1. mgr. 28. gr. að hafi kæra borist að liðnum kærufresti skuli vísa henni frá, nema afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, sbr. 1. tölul. 1. mgr., eða veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 2. tölul. sömu málsgreinar. Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila, sbr. 2. mgr. Þér getið þannig freistað þess að bera málið undir ráðherra þótt kærufrestur samkvæmt lögum nr. 76/2003 sé liðinn ef þér teljið að þessi skilyrði séu uppfyllt. Með þessari ábendingu hefur þó engin afstaða verið tekin til þess hver ættu að vera viðbrögð ráðherra við slíkri beiðni.

Með vísan til framangreinds lýk ég umfjöllun minni um erindi yðar, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997. Farið þér þá leið að freista þess að bera úrskurð sýslumanns undir ráðherra og teljið yður beitta rangsleitni að fenginni niðurstöðu ráðuneytis hans getið þér leitað til mín að nýju með kvörtun þar að lútandi.