Málsmeðferð og starfshættir stjórnsýslunnar.

(Mál nr. 11424/2021)

Kvartað var yfir Barnaverndarstofu vegna málsmeðferðar og mismunar af hálfu barnaverndarnefndar. 

Af erindinu mátti ráða að það væri fyrst og fremst ábending um starfshætti stjórnsýslunnar sem viðkomandi taldi að taka þyrfti til almennrar athugunar og var afgreitt sem slíkt.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 21. desember 2021, sem hljóðar svo:

 

  

Vísað er til erindis yðar 6. desember sl. sem beinist að Barnaverndarstofu. Í erindinu kemur fram að þér hafið kvartað til stofnunarinnar vegna málsmeðferðar og mismununar af hálfu barnaverndarnefndar Kópavogs en í móttökubréfi 14. október sl. kom fram að gera megi ráð fyrir því að athugun máls á grundvelli kvartana taki nokkurn tíma, eða tíu til tólf mánuði. Þótt erindið sé sett fram í formi kvörtunar og snerti að hluta samskipti yðar við stofnunina verður ráðið að því sé fyrst og fremst beint til embættis umboðsmanns sem ábendingu um starfshætti í stjórnsýslunni sem þér teljið ástæðu til að teknir séu til almennrar athugunar á grundvelli 5. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, sbr. niðurlag í rökstuðningi kvörtunarinnar. Af þeim sökum fjalla ég ekki frekar um erindi yðar sem kvörtun, heldur ábendingu um frumkvæðismál.

Þegar umboðsmanni berast erindi sem fela í sér ábendingu er verklag þannig að erindið er yfirfarið með tilliti til þess hvort tilefni sé til að taka atriði sem koma fram í því til athugunar á grundvelli 5. gr. laga nr. 85/1997. Við mat á því er m.a. litið til starfssviðs og áherslna umboðsmanns, hagsmuna sem tengjast málefninu sem um ræðir og málastöðu og nýtingar mannafla hjá embættinu. Ef af slíkri athugun verður í kjölfar ábendingar eða kvörtunar er þeim sem vekur máls á umræddum atriðum almennt ekki tilkynnt um það sérstaklega heldur er upplýst um það á heimasíðu embættisins, www.umbodsmadur.is.

Með hliðsjón af framangreindu og með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 lýk ég hér með athugun minni á erindi yðar sem kvörtun en árétta að í framhaldinu verður metið hvort tilefni sé til að hefja athugun á grundvelli 5. gr. sömu laga.