Samgöngumál. Aðild.

(Mál nr. 11437/2021)

Kvartað var yfir akstursskilyrðum og skorti á bílastæðum í miðborg Reykjavíkur.

Þar sem umkvörtunarefnið snerti ekki beinlínis hagsmuni viðkomandi umfram aðra voru ekki forsendur til að taka það til nánari athugunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 23. desember 2021, sem hljóðar svo:

 

  

Vísað er til kvörtunar yðar 9. desember sl. sem beinist að Reykjavíkurborg. Nánar tiltekið lýtur kvörtunin að akstursskilyrðum og skorti á bílastæðum í miðborg Reykjavíkur.

Samkvæmt 2. mgr. 4. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, getur hver sá sem telur sig hafa verið beittan rangsleitni af aðilum sem heyra undir eftirlit hans kvartað af því tilefni til umboðsmanns. Í þessu ákvæði felst að til þess að kvörtun verði borin fram við umboðsmann Alþingis þarf að liggja fyrir ákveðin ákvörðun, athöfn eða athafnaleysi stjórnvalds sem beinist sérstaklega að þeim sem leggur fram kvörtun eða snertir beinlínis hagsmuni hans eða réttindi umfram aðra. Kvörtun af hálfu aðila sem ekki sýnir fram á að brot geti beinlínis snert hagsmuni hans eða réttindi getur þó vakið athygli umboðsmanns á vandamáli. Er honum þá heimilt að taka upp mál að eigin frumkvæði, sbr. 5. gr. laga nr. 85/1997. Ef af slíkri athugun verður í kjölfar ábendingar eða kvörtunar er þeim sem vekur máls á vanda almennt ekki tilkynnt sérstaklega um það heldur er upplýst um það á heimasíðu embættisins, www.umbodsmadur.is.

Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að þau atriði sem þar eru tilgreind snerti beinlínis hagsmuni yðar eða réttindi umfram aðra. Tel ég því ekki forsendur til að taka kvörtun yðar til nánari athugunar.

Með hliðsjón af framangreindu lýk ég athugun minni á kvörtun yðar með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.