Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 10962/2021)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu Tryggingastofnunar á erindi.

Í ljós kom að erindið hafði ekki farið í réttan farveg hjá Tryggingastofnun og af þeim sökum ekki verið svarað. Úr því hefði verið bætt og því ekki ástæða til að umboðsmaður aðhefðist frekar.

  

Settur umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 19. mars 2021, sem hljóðar svo:

  

  

Ég vísa til kvörtunar yðar, dags. 23. febrúar sl., þar sem þér kvartið yfir töfum á afgreiðslu Tryggingastofnunar á erindi yðar frá 17. desember sl. Málið varðar beiðni yðar um endurupptöku í máli umbjóðanda yðar, A.

Í tilefni af kvörtun yðar var Tryggingastofnun ritað bréf, dags. 25. febrúar sl., þar sem þess var óskað að stofnunin upplýsti um hvað liði meðferð og afgreiðslu erindisins. Mér hefur nú borist svar frá Tryggingastofnun, dags. 12. mars sl., þar sem fram kemur að í ljós hafi komið að erindi yðar hafi ekki farið í réttan farveg hjá stofnuninni og hafi af þeim sökum ekki verið svarað. Í kjölfarið hafi erindi yðar verið tekið til meðferðar og því svarað 11. mars sl.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að því að erindi yðar hafi ekki verið svarað og þar sem það hefur nú verið gert tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtun yðar. Lýk ég því meðferð minni á málinu með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.

Undirritaður fór með mál þetta sem settur umboðsmaður Alþingis á grundvelli 3. mgr. 14. gr. laga nr. 85/1997.

  

  

Kjartan Bjarni Björgvinsson