Skattar og gjöld. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 11476/2022)

Kvartað var yfir viðskiptum við DHL Express Iceland ehf.  

Ekki voru skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina þar sem efni hennar féll utan starfssviðs hans.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 24. janúar 2022, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 8. janúar sl. yfir viðskiptum yðar við DHL Express Iceland ehf.

Samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið hans almennt til stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga auk einkaaðila sem að lögum hefur verið falið opinbert vald til að taka stjórnvaldsákvarðanir, sbr. 3. gr. laganna. Önnur starfsemi einkaaðila fellur hins vegar að jafnaði ekki undir starfssvið umboðsmanns eins og það er markað í lögum nr. 85/1997. DHL Express Iceland er einkahlutafélag og telst einkaréttarlegur aðili. Það fellur því utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtun yðar.

Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 er umfjöllun minni um kvörtun yðar lokið.