Skattar og gjöld.

(Mál nr. 11473/2022)

Kvartað var yfir úrskurði yfirskattanefndar.  

Ekki varð annað ráðið en kvörtunin væri sama efnis og önnur eldri kvörtun frá viðkomandi sem settur umboðsmaður afgreiddi. Umboðsmaður benti á að ekki væri gert ráð fyrir að kjörnum umboðsmanni væri unnt að segja álit sitt á meðferð og niðurstöðum setts umboðsmanns. Þvert á móti væri settur umboðsmaður í sínum störfum óháður fyrirmælum frá öðrum og bæri einn ábyrgð á afgreiðslu þeirra mála sem honum væru falin. Ekki væri því gert ráð fyrir því í lögum að umboðsmaður tæki afgreiðslur setts umboðsmanns til endurskoðunar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 24. janúar 2022, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 7. janúar sl. f.h. A ehf. yfir úrskurði yfirskattanefndar nr. 9/2021 frá 27. janúar sl.

Af kvörtuninni verður ekki annað ráðið en að hún sé sama efnis og kvörtun yðar 12. mars sl. sem fékk málsnúmerið 10980/2021. Settur umboðsmaður Alþingis lauk athugun sinni á þeirri kvörtun með bréfi 26. mars sl. þar sem yður var gerð grein fyrir að hann teldi sig ekki hafa forsendur til þess að gera athugasemdir við niðurstöðu nefndarinnar.

Af lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, leiðir að ekki er gert ráð fyrir að kjörnum umboðsmanni sé unnt að segja álit sitt á meðferð og niðurstöðum setts umboðsmanns. Þvert á móti er settur umboðsmaður í sínum störfum óháður fyrirmælum frá öðrum, sbr. 3. mgr. 2. gr. laganna, og ber einn ábyrgð á afgreiðslu þeirra mála sem honum eru falin á grundvelli 14. gr. þeirra. Það er því ekki gert ráð fyrir því í lögum um umboðsmann að hann taki til endurskoðunar þau mál sem fyrri umboðsmaður, kjörinn eða settur, hefur fjallað um. Af sömu sjónarmiðum sem og því svigrúmi sem umboðsmaður hefur samkvæmt 10. gr. laganna til að ákveða hvaða mál hann fjallar um leiðir að almennt er ekki nægt tilefni til að umboðsmaður taki til nánari athugunar kvörtun sem lýtur að sömu atvikum og fyrri umboðsmaður hefur tekið til athugunar. Tel ég ekki efni til að annað gildi um kvörtun yðar nú.

Í samræmi við framagreint lýk ég meðferð minni á málinu, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.