Skattar og gjöld. Skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar.

(Mál nr. 11490/2022)

Kvartað var yfir breytingum á gjaldi fyrir árskort og aðgang að sundlaugum og líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð.

Ekki varð séð að viðkomandi hefði komið athugasemdum sínum á framfæri við sveitarfélagið og því ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 14. febrúar 2022, sem hljóðar svo:

  

  

Vísað er til kvörtunar yðar 15. janúar sl. yfir breytingum á gjaldi fyrir árskort fyrir aðgang að sundlaugum og líkamsræktarstöðvum í Fjarðabyggð samkvæmt gjaldskrám sveitarfélagsins.

Samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, er hlutverk hans almennt að hafa eftirlit með stjórnvöldum og geta þeir, sem telja sig hafa verið beitta rangsleitni af stjórnvöldum, kvartað af því tilefni til umboðsmanns, sbr. 2. mgr. 4. gr. laganna. Þá segir í 3. mgr. 6. gr. laganna að megi skjóta máli til æðra stjórnvalds sé ekki unnt að kvarta til umboðsmanns fyrir en æðra stjórnvald hefur fellt úrskurð sinn í málinu. Að baki þessu ákvæði býr það sjónarmið að stjórnvöld skulu fyrst fá tækifæri til að leiðrétta ákvarðanir, sem hugsanlega eru rangar, áður en leitað er til aðila utan stjórnkerfis þeirra.

Af framangreindum ákvæðum leiðir m.a. að umboðsmaður fjallar almennt ekki um mál nema stjórnvöldum hafi fyrst verið gefinn kostur á að taka af­stöðu til þeirra. Af kvörtun yðar verður ekki ráðið að þér hafið komið athugasemdum yðar á framfæri við sveitarfélagið og fengið formleg viðbrögð þess við þeim. Í ljósi þess og með hliðsjón af framangreindu tel ég ekki uppfyllt skilyrði til að taka kvörtun yðar til athugunar að svo stöddu, heldur tel ég rétt að þér óskið fyrst eftir afstöðu sveitarfélagsins til athugasemda yðar teljið þér tilefni til þess.

Með vísan til framangreinds og 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 læt ég máli yðar lokið af minni hálfu.