Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11390/2021)

Kvartað var yfir aðgerðarleysi Kópavogsbæjar vegna athugasemda um bílastæði. 

Í svari frá Kópavogsbæ kom fram að málið hefði verið í vinnslu hjá sveitarfélaginu og væri nú á borði byggingarfulltrúa sem myndi senda formlegt svar. Ekki var því tilefni fyrir umboðsmann til að aðhafast frekar.

   

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 28. febrúar 2022, sem hljóðar svo:

   

   

Vísað er til kvörtunar yðar 12. nóvember sl. sem lýtur að aðgerðarleysi Kópavogsbæjar vegna athugasemda yðar sem snerta tilgreind bílastæði.

Í tilefni af kvörtun yðar var sveitarfélaginu ritað bréf 16. desember sl. þar sem þess var m.a. óskað að upplýst yrði í hvaða farveg erindi yðar hefðu verið lögð og hvað liði meðferð og afgreiðslu þeirra. Mér hefur nú borist bréf Kópavogsbæjar 21. febrúar sl. þar sem fram kemur að mál yðar hafi verið í vinnslu hjá sveitarfélaginu og það sé nú á borði byggingarfulltrúa sem muni senda yður formlegt svar.

Í ljósi þess að Kópavogsbær hefur nú upplýst að mál yðar sé til meðferðar hjá sveitarfélaginu tel ég ekki tilefni til þess að aðhafast frekar vegna kvörtunar yðar og læt athugun minni lokið, sbr. a-lið 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.