Dómstólar og réttarfar. Skilyrði þess að kvörtun verði tekin til meðferðar.

(Mál nr. 11539/2022)

Kvartað var yfir meðferð dómsmáls. 

Þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til starfa dómstóla voru ekki skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 28. febrúar 2022, sem hljóðar svo:

 

 

Vísað er til kvörtunar yðar 6. febrúar sl. yfir meðferð dómsmáls sem lyktaði með dómi Landsréttar 19. nóvember sl. í máli nr. 373/2020.

Samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið hans að jafnaði til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga, sbr. 1. mgr. 3. gr. laganna. Í b-lið 4. mgr. sömu greinar er sérstaklega tekið fram að starfssvið umboðsmanns taki ekki til starfa dómstóla. Í samræmi við það fellur utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtun yðar.

     Með vísan til framangreinds brestur lagaskilyrði til þess að fjallað verði um kvörtun yðar og lýk ég því athugun minni á málinu, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.