Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11512/2022)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu félagsmálaráðuneytisins, nú félags- og vinnumarkaðsráðuneytisins, á stjórnsýslukæru.  

Ráðuneytið greindi frá því að vegna mikilla anna hefði afgreiðslan dregist en málinu yrði lokið eigi síðar en í maímánuði nk. Að svo stöddu var því ekki ástæða fyrir umboðsmann til að aðhafast frekar.

  

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 21. mars 2022, sem hljóðar svo:

 

 

Vísað er til kvörtunar yðar 20. janúar sl. fyrir hönd A ehf. yfir töfum á afgreiðslu félagsmálaráðuneytisins, nú félags- og vinnu­markaðs­ráðu­neytisins, á stjórnsýslukæru félagsins.

Í tilefni af kvörtun yðar var ráðuneytinu ritað bréf 21. febrúar sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu kærunnar. Nú hefur borist svar frá ráðuneytinu 8. mars sl. þar sem fram kemur að vegna mikilla anna hafi afgreiðsla málsins dregist og málinu verði lokið eins fljótt og unnt er og eigi síðar en í maímánuði nk.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu máls og nú liggja fyrir áform ráðuneytisins um að ljúka því tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni að svo stöddu. Þar hef ég einnig í huga að svör ráðuneytisins bera með sér að fallist sé á að óhóflegar tafir hafi orðið á meðferð málsins.

Lýk ég því meðferð minni á kvörtun yðar með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis. Verði frekari tafir á meðferð málsins getið þér leitað til mín á ný teljið þér þá ástæðu til þess.