Lífeyrismál. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 11622/2022)

 

Kvartað var yfir Alþingi, lífeyrissjóðum og fjármálafyrirtækjum vegna lífeyrisréttinda.

 

Ekki voru skilyrði til að umboðsmaður fjallaði um kvörtunina þar sem starfssvið hans nær ekki til starfsemi og starfa þeirra sem kvartað var yfir.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi 7. apríl 2022.

 

 

 

Vísað er til kvörtunar yðar 23. mars sl. yfir Alþingi, lífeyrissjóðum og fjármálafyrirtækjum vegna lífeyrisréttinda yðar.

Samkvæmt lögum nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið hans almennt til stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga auk einkaaðila sem að lögum hefur verið falið opinbert vald til að taka stjórnvaldsákvarðanir, sbr. 3. gr. laganna. Önnur starfsemi einkaaðila fellur að jafnaði ekki undir starfssvið umboðsmanns eins og það er markað í lögum nr. 85/1997. Þá tekur starfssvið hans ekki heldur til starfa Alþingis, sbr. a-lið 4. mgr. 3. gr. sömu laga.

Lífeyrissjóðir og fjármálafyrirtæki eru almennt einkaréttarlegir aðilar og fellur starfsemi þeirra að jafnaði utan starfssviðs umboðsmanns. Af þeim sökum og þar sem starfssvið umboðsmanns tekur ekki til starfa Alþingis liggur ekki annað fyrir en að kvörtunarefni yðar falli utan starfssviðsins. Eru því ekki skilyrði að lögum til að fjalla nánar um kvörtun yðar.

Með vísan til 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997 er umfjöllun minni um kvörtun yðar því lokið.