Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11582/2022)

 

Kvartað var yfir töfum á meðferð máls hjá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

 

Í kjölfar fyrirspurnar umboðsmanns var kveðinn upp úrskurður í málinu og því ekki ástæða til að aðhafast frekar.

 

 Umboðsmaður lauk málinu 19. apríl 2022.

 

 

Vísað er til kvörtunar yðar 13. febrúar sl. fyrir hönd A ehf. yfir töfum á meðferð samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins, nú innviða­ráðuneytið, á málinu SRN21070082.

Í tilefni af kvörtun yðar var ráðuneytinu ritað bréf 2. mars sl. þar sem þess var óskað að það upplýsti hvað liði meðferð málsins. Með svarbréfi ráðuneytisins 5. apríl sl. var upplýst að úrskurður hefði verið kveðinn upp í málinu 25. mars sl. og hann verið sendur yður.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á meðferð framangreinds máls og ráðuneytið hefur nú upplýst að það hefur verið leitt til lykta er ekki ástæða til að aðhafast frekar í tilefni af kvörtuninni. Lýk ég því athugun á henni, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.