Tafir hjá stjórnvaldi á afgreiðslu máls.

(Mál nr. 11647/2022)

Kvartað var yfir töfum á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á stjórnsýslukæru.

Í kjölfar fyrirspurna umboðsmanns var kveðinn upp úrskurður í málinu þar sem úrskurður sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu var felldur úr gildi og því vísað til nýrrar meðferðar hjá honum. Ekki var því ástæða til að aðhafast frekar.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 27. maí 2022, sem hljóðar svo:

 

 

Vísað er til kvörtunar yðar 5. apríl sl. yfir töfum á afgreiðslu dómsmálaráðuneytisins á stjórnsýslukæru yðar frá 4. janúar sl.

Í tilefni af kvörtun yðar var ráðuneytinu ritað bréf 26. apríl sl. þar sem óskað var upplýsinga um hvað liði meðferð og afgreiðslu málsins. Nú hafa borist svör frá ráðuneytinu 10. og 13. maí sl. þar sem fram kemur að ráðuneytið hafi kveðið upp úrskurð í málinu 11. þessa mánaðar. Samkvæmt úrskurðarorði var hinn kærði úrskurður sýslu­mannsins á höfuðborgarsvæðinu felldur úr gildi og málinu vísað til nýrrar meðferðar hjá sýslumanni.

Þar sem kvörtun yðar lýtur að töfum á afgreiðslu framangreinds máls og nú liggur fyrir að ráðuneytið hefur kveðið upp úrskurð í því tel ég ekki ástæðu til að aðhafast frekar í tilefni af henni að svo stöddu. Lýk ég því meðferð minni á kvörtun yðar með vísan til a-liðar 2. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis.