Sektir. Starfssvið umboðsmanns Alþingis.

(Mál nr. 11727/2022)

Kvartað var yfir að Bílastæðahúsið Höfðatorgi ehf. svaraði ekki erindum.

Þar sem starfsemi bílastæðahússins fellur ekki undir starfssvið umboðsmanns voru ekki skilyrði til að hann fjallaði um kvörtunina.

 

Umboðsmaður lauk málinu með bréfi, dags. 16. júní 2022, sem hljóðar svo:

 

Vísað er til kvörtunar yðar 13. júní sl. yfir því að Bílastæðahúsið Höfðatorgi ehf. svari ekki erindum yðar.

Samkvæmt 3. gr. laga nr. 85/1997, um umboðsmann Alþingis, tekur starfssvið hans til stjórnsýslu ríkis og sveitarfélaga en ekki til starfsemi einkaaðila nema að því leyti sem þeim hefur að lögum verið fengið opinbert vald til að taka ákvarðanir um rétt eða skyldu manna í skilningi 2. mgr. 1. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993. Bílastæðahúsið Höfðatorgi er einkahlutafélag og því einkaréttarlegur aðili. Af þeim sökum fellur það utan starfssviðs umboðsmanns að fjalla um kvörtun yðar.

Með vísan til þess sem að framan er rakið eru ekki uppfyllt lagaskilyrði til að kvörtun yðar verði tekin til meðferðar og er athugun á henni því lokið, sbr. 1. mgr. 10. gr. laga nr. 85/1997.